28.6.13

Fallegt íslenskt heimili

Bloggið hennar Ásu Regins á sér engin fegurðartakmörk. Hér að neðan eru nokkrar myndir af heimili hennar sem hafa birst á bloggsíðunni sem hún er með. Ekkert nema fallegt! :)
***
This is the home of the Icelandic blogger Ása Regins. Here below are a few pictures from her home, so pretty.





26.6.13

Wood

Viðurinn er alltaf klassískur og gaman er að blanda honum saman við önnur efni. Þó ég spili nú ekki á hljóðfæri heillaði píanóið mig hér að neðan upp úr skónum! Einnig er ég ótrúlega hrifin af stólunum.
***
Wood is a classic material, it's fun to mix it up with different materials. Although I don't play the piano I have a big crush on the piano here below. I also love the chairs.




25.6.13

Colorful Kitchen

Er þessi íbúð ekki hressandi!? Maður er svo oft fastur í svörtu, hvítu eða gráu.. hér fá litir að njóta sín og gefa eldhúsinu skemmtilegan blæ.
***
Isn't this apartment refreshing? You always choose black, white or gray.. here the colors make up the kitchen and give it some personality.


21.6.13

20.6.13

Diamonds

Hver elskar ekki demanta? Þeir er eitt af þessu klassíska sem maður fær aldrei leið á.
***
Who doesn't love diamonds? Diamonds are one of those things you can't get tired of.

1 | 2 | 3 | 4

17.6.13

The Home of Elisabeth Heier

Þetta er fallegt heimili bloggarans Elisabeth Heier. Hún heldur úti flottu bloggi sem ég hvet ykkur til að kíkja á. 
***
This is the beautiful home of Elisabeth Heier. She has a really inspiring blog that you should check out.






15.6.13

Rice Krispies kaka



Fyrir nokkru síðan ákvað ég að prófa að gera mína eigin útgáfa af hinni gómsætu Rice Krispies köku. Kakan heppnaðist mjög vel og var mjög bragðgóð. 

Kakan: 150-200 g súkkulaði (eftir smekk) - 60 smjör - 4 msk sýróp - 100 g Rice Krispies.

Þetta gerist varla auðveldara! Byrjað er að bræða smjörið við vægan hita og því næst er súkkulaðið sett út í og látið bráðna. Svo er sýrópinu bætt við og að lokum er Rice Krispies sett út í (hér er gott að hafa rúmgóðan pott svo það sé pláss fyrir allt!) Blandan er sett í hringlaga form og inn í ísskáp í u.þ.b. 15 mín.

Þá er bara að byrja á karamellusósunni:

Karamellusósan: 60 g smjör - 60 g púðursykur - 1/4 tsk vanilludropar - 1-2 msk rjómi.

Öll hráefni eru sett í pott við háan hita og hrært í þangað til að úr verður karamellublanda. Gott er að kæla karamellusósuna töluvert áður en hún er sett ofan á rjómann, annars er hætta á að hann "bráðni." Nú er gott að þeyta rjómann (tæplega 1/4L) sem fer ofan á kökuna.

Næst er kakan tekin úr ísskápinum og rjóminn smurður ofan á.  Best er svo að setja kökuna í ísskáp í um 45 mín. Þá er hún tilbúin! Gangi ykkur vel :-)

12.6.13

Wall of Frames

Svo  fallegt! Myndaveggurinn minn er enn í vinnslu. Þessi er allavega góður innblástur! Ég er hrifnust af því þegar mismunandi gerðum af römmum er blandað saman, þessi fyrir neðan myndi henta mér vel.
***
So pretty! My photo wall is still in progress. The picture below is a good inspiration. I love it when different kinds of photo frames are mixed together, so the frames below would be perfect for my home.


4.6.13

String vs. Ikea

Mikið finnst mér þetta skemmtileg hugmynd! :) String hillurnar hafa lengi verið vinsælar en þær eru í dýrari kantinum og hafa þar af leiðandi ekki allir efni á þeim. Camilla Klemets kom með skemmtilega hugmynd fyrir þá sem hafa ekki efni á String hillum að fjárfesta í þessum gullfallegu hillum frá IKEA. Frábær hugmynd.




2.6.13

Yellow

Sumarlegur og fallegur stóll. Það er ótrúlegt hvað litir geta gert mikið. Þessi fæst í IKEA.
***
This chair screams summer. It's amazing how colors can brighten up a room. This chair is available at IKEA.