1.7.12

Colors


Ég elska stílhrein heimili með fallegum litum, alveg ótrúlegt hvað litir gefa lífgað upp á herbergi. Það sem er í miklu uppáhaldi hjá mér núna eru herbergi með ljósum grunni sem er svo skreytt með alls konar litum. Njótið :)

Æðislegur bleikur lampi.
Elska allt við þetta eldhús. Flottar hillur, IKEA mottan er æði og svo setur þessi lampi punktinn yfir i-ið.
Flottur myndaveggur! (næsta verkefni heima hjá mér, komin með ramma en er að safna myndum)
Litríkir eldhússtólar.
Flottir skrifborðsstólar.
Mér líður eins og ég sé komin út í skóg, love it :)
Flott samsetning á stólum, bleika teppið er geðveikt!
Svart/hvítt þema þar sem bækurnar fullkomna útlitið.

1 comment: