Fyrir þá sem hafa ekki smakkað þessa þá mæli ég með henni! Þetta er ein af mínum uppáhalds kökum og hún er alls ekki flókin.
Kakan: 2 egg - 1,5 dl sykur - 1,5 dl hveiti - 1 tsk lyftiduft - 1/4 tsk salt - 1 tsk vanilludropar - 1 dl heit mjólk - 1 msk brætt smjörlíki.
Byrjað er á að þeyta sykur og egg vel saman. Því næst er þurrefninu hrært varlega saman við (mæli með að sigta þurrefnin ofan í skálina). Að lokum er smjörlíkið brætt og mjólkin hituð (ég set þetta saman í pott) og blandað rólega saman við blönduna. Bökunartíminn er u.þ.b. 10 mínútur við 180°C.
Kókosmjölblanda: 2 msk mjólk - 3 msk smjörlíki (ég nota stundum smjörva) - 4 msk kókosmjöl - 5 msk púðursykur.
Á meðan kakan er í ofninum er kókosmjölblandan búin til. Öllu er blandað saman í potti og suðan látin koma upp. Þegar kakan er búin að bakast í 10 mín er hún tekin úr ofninum og kókosmjölblöndunni er hellt yfir. Kakan er svo sett aftur í ofninn í u.þ.b. 5 mínútur.