Showing posts with label DIY. Show all posts
Showing posts with label DIY. Show all posts

13.12.13

DIY: Paper star

Jæja kæru lesendur, það er ansi langt liðið frá síðustu færslu, ég held að þetta hafi bara aldrei gerst áður! :) Ég er búin að vera á kafi í skólanum og er alveg að komast í langþráð jólafrí. Mig langar að deila með ykkur skemmtilegu DIY, sem ég hef þó ekki prófað sjálf, en mun framkvæma um leið og síðasta verkefninu hefur verið skilað.


Þessi stjarna er alveg dásamlega krúttleg! Leiðbeiningar má finna hér


27.8.13

DIY: Clothing Rack

Frábær hugmynd! Og alls ekki flókin. Það er alltaf gaman að skoða nýjar hugmyndir til að geyma fötin sín.  Hér geturðu séð hvernig á að búa til þennan fallega fatastand.
***
Great idea! And not at all complicated. Here you can see how to make this beautiful clothing rack.


30.7.13

Calendar

Þetta er truflað dagatal, eins og maður segir á góðri íslensku: Æ lov it! :) Þetta ætti nú ekki að vera flókið að útbúa heim, mögulega næst DIY verkefni? Kemur í ljós :)
***
This calender is awesome, I love it! :) This shouldn't be too difficult to make at home, maybe this is my next DIY project? We'll see :)



28.5.13

DIY: Lamp

 Skemmtilegt og fallegt DIY verkefni. Leiðbeiningar má finna hér.
***
Fun and pretty DIY project. Instructions can be found here.



28.4.13

DIY: Gold Bookends

Ég rakst á ótrúlega sniðugt DIY og varð að deila því strax með ykkur! Það sem þú þarft er: Stórir steinar, gullsprey og tappa (til að koma í veg fyrir rispur). Mikilvægt er að þrífa steinana vel áður en þeir eru spreyjaðir svo málningin haldist betur á. Ég hlakka til að prófa þetta!
***
I stumbled upon this beautiful DIY project which I had to share with you immediately. What you need is: Large rocks, metallic gold spray paint and pads (to avoid scratched surface). It's important to scrub the stones before you paint them so the paint adheres well. I look forward to trying this, great idea.


15.4.13

DIY: Framed Calendar

Sæt og einföld hugmynd.
***
Cute and simple idea.


20.3.13

DIY: Candles

Mynd: Tanja Dögg // Djörfung

Ég gleymdi alltaf að sýna ykkur kertin sem ég skreytti með ýmsum myndum í desember - þegar kertaæðið gekk yfir. Hér er brot af þeim kertum sem ég gerði. Ég gaf þau öll í gjafir og á ekki neitt eftir handa sjálfri mér. Ég held að það sé tími til kominn að búa til kerti sem getur yljað mér í kuldanum :-)
***
I always forgot to show you these candles that I decorated in December. Hope you enjoy them :-)

18.3.13

Neon

Eins og oft hefur komið fram er ég miiiikill IKEA aðdáandi og finnst alls ekki leiðinlegt að skottast í heimsókn til þeirra í Garðabæinn ;-) Mér fannst hugmyndin hér að neðan svo sniðug að ég ákvað að deila henni með ykkur. Hér er búið að taka einfalda hluti og mála þá í neon litum og þvílík breyting. Að neðan er hægt að sjá fyrir/eftir myndir. Þar sem ég er meira fyrir pastel þá litist mér vel á að mála einhverja fallega hluti í þeim lit og athuga hvernig kæmu út. Mjög góð hugmynd!
***
I'm a big IKEA fan and love visiting their store. I thought the idea below was so great that I had to share it with you. Simple things from IKEA have been painted in neon colors and what a transformation. Great idea!







12.3.13

DIY: Washi Tape Frame


Ég er ótrúlega hrifin af þessari einföldu hugmynd. Hér er washi tape notað til að búa til ramma fyrir myndir sem eru hengdar inn í. Sniðugt að afmarka svæðið á þennan hátt, þetta kemur mjög vel út! Ég hugsa ég prófi þetta á einhverjum vegg hjá mér :)
***
I love this simple idea. Here is washi tape used to make a frame for pictures. It looks really nice - I'm thinking about trying it on one of my walls :)

7.1.13

Geometric lampshade

Ótrúlega töff heimagerður lampaskermir búinn til úr málmrörum. Ég veit hreinlega ekki hvort ég myndi treysta mér í að föndra svona, en þetta lúkkar allavega mjög vel! :-)
***
Really cool homemade lampshade made of metallic tubes. I love this idea, but I'm not sure I'd be able to do make this myself ;-)




Myndir: Weekdaycarnival.

5.12.12

DIY: Christmas gift tags

Hér að neðan eru þrjár fallegar gerðir af jólamerkimiðum sem hægt er að nota til að merkja pakka. Ég legg alltaf mikla áherslu á merkimiðann þegar ég pakka inn og reyni yfirleitt að föndra eitthvað sjálf. Það hefur tvo kosti, það er bæði ódýrara og persónulegra. Merkimiðarnir, frá 3 eggs design, hér að neðan voru prentaðir á brúnan pappír, en hægt er að hafa þann lit sem fólki líkar best við. Hægt er að prenta þá út hér: 3eggsdesign.
***
Here below are three types of christmas gift tags. I usually make my own gift tags, it's cheaper and more personal than buying them for a store. The gift tags below, from 3 eggs design, were printed on a brown paper. You can print them out here: 3eggsdesign.




Myndir: 3eggsdesign

16.11.12

DIY: Colorful triangle garland


Auðvelt föndur fyrir þá sem vilja lífga upp á heimilið á einfaldan hátt. Þetta er einnig sniðugt fyrir afmælisveislur eða önnur skemmtileg tilefni - mér finnst gera alveg rosalega mikið að bæta smá litum í umhverfið. Ég föndraði þetta í sumar þegar mamma átti afmæli og var ótrúlega ánægð með útkomuna. 

Það sem þú þarft er: Litaður kartonpappír (fæst m.a. IKEA, Eymundsson o.fl.), blýantur, skæri og snæri. 

Skref 1: Teiknaðu tígul á blað og klipptu út - fyrsti tígullinn verður notaður sem mót.
Skref 2: Notaðu mótið til að teikna nokkra tígla í mismunandi litum. 
Skref 3: Klipptu út alla tíglanna.
Skref 4: Límdu tíglana á snæri líkt og sést á efri myndinni. Þeir eru brotnir saman í miðjunni, þannig þú færð þríhyrning í staðinn fyrir tígul.
***
A simple garland for birthday parties or other fun occasions. I made this for my mother's birthday last summer and I loved the outcome.

What you need is: Colored paper, a pencil, scissors and a string.

Step 1: Draw a rhombus on a paper.
Step 2: Use the first rhombus to draw more rhombuses in different colors.
Step 3: Cut out the rhombuses.
Step 4: Glue the rhombuses on a string.

1.11.12

Crystals & Gems


 [1][2]

Ég rakst á þetta flotta mynstur sem hægt er að prenta út hér. Hægt er að nota það sem gjafapappír en einnig væri hægt að setja þetta í ramma upp á vegg. Ég er allavega að hugsa um að gera það :-)
***
I stumbled upon this pretty pattern that you can print out here. You can use is as gift paper, for scrapbooking or as a poster. I'm gonna print it out and put it in a frame :-)

21.10.12

Neon pink




Krúttlegar salatskálar sem fást hér. Ég er rosalega hrifin af "half-painted" hlutum og held að það sé lítið mál að gera sjálfur svona heima. Þetta er allavega einföld og skemmtileg leið til að lífga upp á venjulegar skálar. Ég hvet ykkur einnig til að skoða fleiri vörur á etsy.com, það er rosalega gaman að skoða í gegnum alla fallegu hlutina sem fólk er að selja :-)
***
Cute salad bowls that you can buy here. I really like "half-painted" stuff, and I think it's really easy to do it yourself. It's a simple and fun way to make regular salad bowls look better.


17.10.12

DIY: Art on plywood


Frábær hugmynd. Það sem þú þarft er: Krossviður, skrúfur og myndir til að hengja á. Platan er söguð í þá stærð sem fólk kýs og hengd á vegginn með skrúfum. Auðvelt er að festa myndir, póstkort eða hvað sem er á plötuna með límbandi, kennaratyggjói eða öðru. Þetta er sniðug hugmynd að því leyti að platan gefur einhvers konar ramma og gefur hlýleika.
***
Great idea. What you need is: Plywood board, screws and pictures to hang. You start by cutting the board into the desired size and hang it on the wall with screws. It's easy to attach pictures, postcards or whatever with adhesive tape or pins.
___________
Update: I stumbled upon another great idea that doesn't involve the screws. How cute is this!


6.10.12

DIY: Striped gift tag

Krúttlegir merkimiðar sem ég föndraði fyrir nokkru. Ég ákvað að prófa nokkra liti og fannst þeir allir koma rosalega vel út. Það sem þú þarft er: Merkimiðar (m.a. Tiger), mattur pappír og glanspappír (m.a. Tiger).
***
Cute gift tags that are easy to make. I tried five colors and loved all of them. What you need is: Gift tags and paper.


Mynd: Tanja Dögg // Djörfung

27.9.12

Triangle

Who doesn't love triangles?
Here are a few photos that inspired me. I LOVE the shelf! :)
 

Beautiful gift card! Easy to DIY :)

 

29.8.12

DIY: Tape + tea light

Fyrir nokkrum dögum keypti ég mér köflótt límband í Söstrene Grenes. Mér fannst eitthvað svo krúttlegt við það, en var ekki viss í hvað ég gæti notað það. Í dag datt mér í hug að lífga upp á venjuleg sprittkerti með því að setja límband utan um. Niðurstaðan sést hér fyrir neðan :)
*** 
A few days ago I bought checked tape in a store called Söstrene Grenes. I thought the tape was adorable, but I didn't have much use for it. So today I decided to use it on tea lights by wrapping the tape around them. The results are below, I hope you enjoy it :)



17.8.12

Charm Bracelet

Krúttleg hugmynd! Gaman að sjá eina krónu á erlendu armbandi! :) Hægt er að fá leiðbeiningar hér.
***
Cute idea! It was fun to see Icelandic króna on the bracelet. Instructions here.

31.7.12

Dotted wall

[1][2][3][4][5][6]

Ótrúlega sæt og einföld hugmynd! :) Þetta er mjög auðvelt að gera, annað hvort hægt að kaupa hringlaga límmiða eða klippa út og líma svo á vegginn. 
***
Cute and simple idea! :) It's really easy to do, you can for example buy stickers! I'm thinking about doing this at my home.