Showing posts with label Íslensk Hönnun. Show all posts
Showing posts with label Íslensk Hönnun. Show all posts

11.3.13

The Hearth Tea Light

Hearth tea light serían er nýjasta verkefni Ragnheiðar Aspar (sem hannar undir Umemi). Serían samanstendur af sprittkertastjökum sem koma í fjórum mismunandi gerðum og litum. Hver stjaki samanstendur af þremur pörtum og hægt er að taka stjakana í sundur og púsla saman við aðra stjaka, því eru möguleikarnir ansi margir. Mjög skemmtileg hönnun.
***
The Hearth tea light series is the most recent project from Ragnheiður Ösp (Umemi). The series consists of individual tea light holders that are available in four different sizes and colors. Each holder consists of three parts and can be taken apart and mixed with the other types, so there are many possibilites. Really fun design.




via - [Source]

9.9.12

IHANNA HOME

Hin hæfileikaríka Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir á hönnunarfyrirtækið IHANNA HOME sem snýr að hönnun á fallegum vörum fyrir heimilið. Mér líst rosalega vel á nýju línuna hennar sem kallast Wood/Wood/Wood og kemur í Epal í byrjun september. Ég hefði a.m.k. ekki mikið á móti að drekka kaffi úr þessum fallegum bollum hér fyrir neðan!
 
Tölvan mín fór í viðgerð á miðvikudag og því hef ég ekki bloggað mikið síðustu daga.. Ég fæ hana vonandi fljótlega í hendurnar aftur og fer þá aftur á fullt! Bloggleysið er að valda fráhvarfseinkennum þannig ég hlakka til að fá tölvuna mína aftur :)
***
The talented Icelandic designer Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir owns the design company IHANNA HOME that specialises in beautiful accessories for the home.
 
Wood/Wood/Wood

Frame It

Wood/Wood/Wood

Ljósspor

Not Rudolf

7.8.12

Hamingjukerti

 


Falleg kerti frá Hádegisverksmiðjunni / Noonfactory. Þau kallast hamingjukerti og hver litur er tákn fyrir eitthvað. Blár: Vinátta, tjáning, leiðsögn - Ljósbleikur: Ást, vinátta og rómantík - Dökk-bleikur: Sjálfstæði, kraftur og hugsjónir - Appelsínugulur: Sköpunarkraftur, sjálfstraust og lífsgleði - Gulur: Kærleikur, viska og bjartsýni - Grænn: Velgengni, frjósemi og heppni - Hvítur: Friður, heilun og styrkur.

***
Icelandic design! Beautiful candles by Noonfactory - called candles of happiness. Every color stands for something. Blue for example stands for friendship, expression and guidance. Light pink stands for love, friendship and romance. 



25.7.12

Dottir & Sonur

Rakst á fallega íslenska hönnun - Dottir & Sonur. Greinilega töffarar hér á ferð.
*** 
Icelandic design - Dottir & Sonur

Lightlace - a fun and diverse hanging light

KR pillow

Origami wallpaper - delicate and smooth light paper

Shadow Zoo Pillows

4.7.12

Hangers

Öðruvísi fatahengi frá Normann Copenhagen. 
Ég er nokkuð viss um að ég hafi séð svona í Epal, fæst annars hér.

Falleg hugmynd. Einfalt DIY verkefni, það eina sem þarf er trjágrein, keðja og krókar.

 Það þarf ekki alltaf að nota herðatré undir föt. Þú getur fengið vírherðatré 
í fatahreinsunum, og ef þú vilt ákveðinn lit þá er bara að spreyja! :)

Geðveik hugmynd! Mig langar ótrúlega mikið að gera svona sjálf heima.
Ég myndi reyndar mála stigann hvítan - leiðbeiningar hér.

 Sniðugt :) Herðatré notuð sem eins konar myndarammi. 
Sá einnig aðra útgáfu þar sem ódýr herðatré úr IKEA eru notuð, fást hér.

Klassísku krummaherðatréin eftir Ingibjörgu Hönnu Bjarnadóttir. Fást hér.