Showing posts with label Tíska. Show all posts
Showing posts with label Tíska. Show all posts

8.1.13

Very French Gangsters







Hversu töff og krúttlegt á sama tíma! Elska þessa litlu töffara og gleraugun eru algjört æði. Skemmtileg og öðruvísi auglýsingaherferð :-)
***
How cute and cool at the same time! I love these little gangsters and the glasses are awesome :-)

20.11.12

Necklaces by Emily Green


Skemmtileg hálsmen! Emily Green er hönnuður frá Melbourne í Bandaríkjunum. Hún býr til listaverk og fylgihluti sem einblína á liti og geómetrísk form. Allar vörur hennar eru handgerðar, sem gera þær ennþá sérstakari :-)
***
Fun necklaces. Emily Green is a designer from Melbourne U.S.A. She makes artworks and accessories that explore color and geometric shapes. All of her products are handmade - which makes them even more special :-)

8.8.12

TOPSHOP: Sensationalist collection

Ótrúlega flott nýja Topshop línan sem kallast Sensationalist collection. Margt í þessari línu mætti læðast í pokann minn og ég valdi hér nokkrar vörur sem mig langar í. Hægt er að skoða restina af línunni hér. Það sem einkennir línuna eru dökk föt með glimmer, dökkir varalitir í stíl og fallegt skart til að lífga upp á outfittið.
***
I love the new AW12 Sensationalist collection by Topshop. I picked out some things I'd like in my bag. You can see the rest of the collection here. Dark clothes, dark lipsticks and beautiful accessories that light up the outfit.


30.7.12

Lokadagar útsölunnar!




Eru ekki allir búnir að kíkja á útsölurnar? Ég er yfirleitt ekki hrifin af útsölum og kaupi yfirleitt ekki mikið á þeim.. en útsölurnar í sumar hafa alveg náð til mín. Ég keypti vörurnar hér að ofan í Topshop og hef aldrei áður séð jafn mikið sem mig langar í! Því hvet ég alla til að kíkja á útsölurnar áður en þeim lýkur á sunnudag - og þá sééérstaklega í Topshop ;-)
***
Usually I don't like sales, but this time I've been wanting everything! I bought the clothes above in Topshop - which is my favorite store. The sales end on Sunday, so everyone has gotta hurry up ;-)

20.7.12

LungA - Fashion show

Eins og margir vita er LungA (Listahátíð ungs fólks á Austurlandi) nú á Seyðisfirði þar sem ég er stödd. Ég fór í gær á fatahönnunarsýningu LungA sem var öðruvísi þetta árið. Það var ekki þetta hefðbundna "catwalk" heldur var módelunum stillt upp. Fyrsta uppstillingin minnti helst á frumskóg. Sú næsta innihélt dansandi stelpur og sú þriðja var róleg með bleikum tónum. Virkilega skemmtileg og áhugaverð sýning
***
LungA is a yearly art festival that takes part in Seyðisfjörður in the middle of July. Last night I went to LungA's fashion show which was quite different this year. There was no "catwalk" - only still models. Really interesting and enjoyable show.


Frumskógarþema // Jungle theme

Dansandi módel // Models dancing

Bleikir tónar // Pink shades

17.7.12

Mixed bag: Sumar og sól

Veðrið er búið að leika við okkur í dag á Seyðisfirði þar sem ég er í smá sumarfríi. Vonandi fengu þið líka að njóta sólarinnar í dag. Þegar veðrið er gott langar mig alltaf að vera stödd einhvers staðar úti í heimi í hitanum á sólarströnd. Þessir hlutir væru aldeilis fínir á ströndinni - nú eða bara í miðbæjarrölti (ef við erum heppin með veður). 
***
The weather in Iceland has been amazing for the last few days. When the weather is this good I always dream of a vacation abroad, somewhere hot. These pretty things above would be perfect for the beach.

1. Gullfallegt ferskjulitað pils // a beautiful dip back maxi skirt.
2. Einfaldur hlýrabolur // a simple top
3. Brúnir sandalar með gylltu bandi // brown metal cuff sandals
4. Töffaraleg sólgleraugu // aviator sunglasses
5. Strandtaska // straw basket bag

5.7.12

Mixed bag: Óskalistinn

Nokkrir vel valdir hlutir sem eru ofarlega á óskalistanum! :)

[Vískiglas úr Ikea] Ég drekk ekki vískí... en ef ég myndi eignast þetta glas þá væru mun meiri líkur á því!

[Veggspjald eftir Therese Sennerholt] Fullkomið fyrir myndavegginn sem er í vinnslu.

[Púði úr Ilvu] Ótrúlega sumarlegur og tilvalinn í að lífga upp á stofuna.

[Kjóll frá Topshop] Metallic blár kjóll sem er einmitt á útsölu! Því miður ekki til í minni stærð, verð bara að láta mig dreyma.

[Taska úr Hrím] Hún er alltof dýr - en er hún samt ekki geðveik!?

[Hálsmen úr Zöru] Krúttleg skordýr sem er búið að raða á keðju, love it!


29.6.12

Little Wolf Vintage

[1][2][3][4]

Little Wolf Vintage er fatabúð á netinu sem sérhæfir sig í einstökum og fallegum fötum. Mikið af vörunum eru vintage föt sem búið er að breyta, sauma í og gera flottari. Ég er mjög skotin í þeim þar sem mér finnst gaman af fötum sem ekki allir eiga. Endilega tjékkið á þessu - þau senda til Íslands :)

Little Wolf is about: Cool water, hot sun. Sand, surf, wind. Salt on your skin. Starry nights and bonfires. Imprompty roadtrips, staying up all night, watching the sunrise. Night breeze through the window. Summertime. This is what Little Wolf Vintage is about. Capturing those moments and making them last. So when you find sand in your pockets, you remember the good times.

27.6.12

DSQUARED2


Campaign (sumar 2012) fyrir fatamerkið DSQUARED2. Fáránlega flottur sumarfílingur! Gæjarnir á bak við þetta fatamerki eru tvíburabræðurnir Dean og Dan Caten. Fyrsta búðin þeirra var opnuð árið 2007 í Mílanó en þeir eru í dag með búðir í París, Hong Kong og á fleiri stöðum. Þeir senda ekki til Íslands eins og er, en það er á döfinni hjá þeim - það þarf hvort sem er að safna ansi lengi til að eiga fyrir fötum frá þeim :) Hér eru þrír jakkar úr sumarlínunni sem mér leist vel á:


[1][2][3]




25.6.12

Mixed bag - Bleikir tónar

Það er svo gaman að sumarið er komið! Ég elska litadýrðina sem fylgir því og svo er líka skemmtilegt að geta skilið úlpuna eftir heima þegar maður kíkir út :) Ég tók smá "net-rúnt" og rakst á þessa fallegu hluti:

1. Skór frá Office (og eru einmitt á útsölu núna).
2. Fullkominn sumarkjóll frá Topshop.
3. Fallegt veski frá H&M.
4. Bókin 'What Would Audrey Do?' sem ég held að fáist í IÐU.
5. Naglalakk sem ber því skemmtilega nafni: Italian Love affair.

13.6.12

Mixed bag


1. Jeffrey Campbell skór með göddum
2. Sumarlegur 
gulur bolur frá H&M
3. Pink reef 
kinnalitur frá Make up store
4. 
Stóll frá HAY (fæst í Epal)
5. Græn 
leðurtaska
 úr Topshop