28.5.13

DIY: Lamp

 Skemmtilegt og fallegt DIY verkefni. Leiðbeiningar má finna hér.
***
Fun and pretty DIY project. Instructions can be found here.



26.5.13

70/70

Ný hönnun frá Muuto, borðið kallast 70/70 og er hannað af hönnunarfyrirtækinu TAF. Mér finnst það mjög fallegt og hönnunin einföld. 
***
New design by Muuto, a table called 70/70 designed by the design firm TAF. I think it's really pretty.



22.5.13

House in Stockholm

Flottar myndir sem birtust í Elle Interiör árið 2010. Það eru sum heimili sem maður heillast algjörlega af og þetta er eitt af þeim. Ég elska allt frá mottunni í stofunni til málverksins í svefnherberginu. Vonandi eruð þið jafn hrifin og ég :)
***
Lovely pictures that were published in Elle Interiör in 2010. There are some homes that you just can't help falling in love with and this is one of them. I love everything about from the carpet in the living room to the painting in the bedroom. Hope you like it as much as I do :)

,

17.5.13

Interior by Pia Ulin

Fallegar innanhússmyndir teknar af ljósmyndaranum Piu Ulin. 
Ég er mjög skotin í flísunum á eldhúsinu, þær ert algjört æði.
***
Beautiful interior pictures by the photographer Pia Ulin. 
I have crush on the tiles in the kitchen!

Kósý púðar, ég er hrifin af öllu röndóttu þannig þessir myndu passa vel inn heima.

Ótrúlega fallegt eldhús.

Sniðugt að hafa bókastafla sem skraut.

Baðið er ekki alveg í mínum stíl, en ég er mjög hrifin af svefnherberginu.

15.5.13

Beautiful Bedroom

Já takk! Gríðarlega fallegt svefnherbergi, líka svolítið stelpulegt þar sem fallegar bækur og tímarit eru á veggnum. Það eina sem mér finnst vanta er litaður púði á rúmið, þá væri ég flutt inn :-)
***
Yes please! Beautiful bedroom, it's a bit girly because of the books and magazines on the shelf. The only thing that's missing in my opinion is a colored cushion on the bed, then it would be perfect :-)



13.5.13

Skúffukaka

Mynd: Tanja Dögg // Djörfung

Ég gerði þessa girnilegu köku með bestu vinkonu minni þegar ég heimsótti hana til Danmerkur. Kakan heppnaðist rosalega vel og var dásamlega bragðgóð og við nutum hennar með köldu glasi af mjólk. Þetta er hin dæmigerða skúffukaka sem allir hafa smakkað:

Kakan: 5 dl hveiti - 2 dl sykur - 2 dl púðursykur - 1 dl kakó - 3 tsk vanillusykur - 1 tsk matarsódi - 1 tsk lyftiduft - 170 gr brætt smjörlíki - 2 egg -2 1/2 dl mjólk - 1/2 dl heitt vatn.

Byrjað er á að bræða smjörið. Öll hráefnin, nema vökvinn, eru sett í skál og hrærð saman. Því næst er heita vatninu, smjörinu og mjólkinni bætt rólega út í deigið og eggjunum bætt við. Deiginu er því næst hellt í smurt bökunarform (ca. 25 x 35 cm) og bakað við 200 °C í rúmlega 20-30 mínútur (mismunandi eftir ofnum).

Kremið: 100 g mjúkt smjörlíki - 1 egg - 1 tsk vanilludropar - 1 msk kaffi (ekki nauðsynlegt) - 3 msk kakó - flórsykur eftir þörfum.

Öllu blandað saman í skál og flórsykri bætt við eftir þörfum. Það tók smá tíma hjá okkur að finna rétt magn af flórsykri, þannig gott er að byrja á að setja lítið og bæta svo við ef þið viljið hafa kremið sætara. Svo skemmir auðvitað ekki fyrir að hafa kókosmjöl ofan á kökunni.

Kakan er svo að sjálfsögðu borin fram með ískaldri mjólk, namm! Njótið :)

9.5.13

All Is Pretty

Ótrúlega fallegt rými með flottum litum. Ég er búin að stara lengir á þessar myndir, það er eitthvað við þær sem hreinlega grípur minn. Ég vona að allir hafi það gott í góða veðrinu, um að gera að nýta það á meðan það er til staðar. Njótið dagsins :)
***
Incredibly beautiful space with lovely colors. I've been staring at these pictures, there's just something mesmerizing about them.




7.5.13

Inspiration of the day

Þetta eldhús hér að neðan er með þeim fallegri sem ég hef séð. Það gæti ekki verið einfaldara og virkar frekar látlaust, en ég er alveg hrikalega skotin í því. Bleiki liturinn á viskastykkinu og græni liturinn af eplunum gerir rosalega mikið, það var a.m.k. það fyrsta sem ég tók eftir. Svo er ég ótrúlega hrifin af opnum hillum í eldhúsum þar sem leirtauið og fallegir eldhúshlutir fá að njóta sín. Íbúðin í heild er líka æðisleg og mjög fallega skipulögð, manni finnst eins og allir hlutir séu á sínum stað. Þessi veitti mér mikinn innblástur, ég vona að hún geri það sama fyrir ykkur!
***
The kitchen below is one of the most beautiful kitchens I've seen. It couldn't be more simple - I have a big crush on it. I also love the apartment, it really inspired me and I hope it does the same for you.


4.5.13

Cushions







Ég fór nýlega í Húsgagnahöllina að skoða ýmislegt fyrir heimilið. Það kom mér á óvart hversu mikið af fallegum púðum eru þar til og í lok heimsóknarinnar var kominn langur listi af púðum sem mig langaði í. Hér eru nokkrir þeirra sem ég sá og læddust á óskalistann. Öðruvísi og skemmtilegir púðar, mér finnst mjög flott að blanda saman textapúðum, myndabúðum og einlitum púðum og því hentar úrvalið í búðinni mér mjög vel. Ég hvet alla þá sem eru í leit að púðum að kíkja í heimsókn í Húsgagnahöllina, þið verðið ekki svikin :-)

2.5.13

Black & White kitchen

Einstaklega fallegt og nýtískulegt eldhús.
***
Pretty and modern kitchen.


1.5.13

Svart & hvítt

Þetta er ótrúlega notaleg íbúð, stofan er algjörlega sniðin fyrir minn smekk! Finnst myndahillan æðisleg og þá sérstaklega uppröðunin á römmunum þar sem stóra myndin fær að njóta sín. Flott uppsetning :)
***
What a cozy apartment, the living room is designed for my taste. I love the photo shelf, especially the arrangement of the frames.