30.1.13

Life is beautiful

Einstaklega fallegt heimili! Einhverra hluta vegna finnst mér það svo íslenskt.. Er ég kannski ein um það? :) Bakkaborðið, Jieldé lampinn, fallega myndin á stofuveggnum - allt hlutir sem ég væri til í að eignast. Svo finnst mér frábært það sem stendur með stórum stöfum á veggnum: LIFE IS BEAUTIFUL!
***
What a lovely home! For some reason I find it very icelandic.. maybe I'm the only one? :) I love the words on the wall: LIFE IS BEAUTIFUL! Really inspiring.






Myndir: Hér.

29.1.13

Kitchen love

Mikið er þetta falleg samsetning! Kitchen Aid hrærivélin og þessi glæsilega brauðrist mega alveg kíkja í heimsókn til mín :-)
*** 
What a lovely combination. The kitchen aid mixer and that awesome toaster are definitely on my wishlist now :-)

Mynd: Hér.

28.1.13

Susanne Brandt

Bjart og litríkt heimili hjá Susanne Brandt. Mér finnst rosalega gaman að skoða heimili þar em fólk er óhrætt við að nota liti og fer sínar eigin leiðir. Ég er einstaklega hrifin af gólfinu í þessu húsi - hvítt, gamaldags parket
***
Bright and colorful home where Susanne Brandt lives. I really like homes where people aren't afraid of using colors and goe their own ways. I especially love the floor in this house.









25.1.13

Lampe Gras 214

Mikið er ég skotin í þessum! Lampinn var hannaður árið 1921 af Bernard-Albin Gras ásamt fleiri lömpum sem voru ætlaðir til notkunar á skrifstofum og í hvers kyns iðnaðarumhverfi. Gras 214 lampinn er einfaldur og fallega hannaður, ég kolféll að minnsta kosti fyrir honum. Til eru nokkrar gerðir af Gras lömpum og má sjá úrvalið hér.
***
I have a crush on this lamp. The lamp was designed in 1921 by Bernard-Albin gras, along with series of other lamps designed for use in offices and in instrustial environment. The Lampe gras 214 is simple and beautifully designed. You can see other Gras lamps by Bernard-Albin here.




Myndir: Lampe Gras



23.1.13

Candle Holders by Anna Leena


Stílhreinir kertastjakar sem fást í vefverslun Önnu Leenu. Ég væri alveg til í einn af öllum gerðum, því eins og  sést hér á myndinni fyrir ofan þá passa þeir einstaklega vel saman þó liturinn, áferðin og lögunin sé ekki eins. Frábær hönnun, þetta er einn af þessum hlutum sem dettur ekki úr tísku, þessir stjakar verða alltaf sígildir.
***
Stylish candle holders by Anna Leena. I'd like one of each type, as you can see on the picture above they match perfectly together. Great design and a great classic, this one will never go out of style.

Hexagon stainless steel candleholder
Hexagon brass candle holder

Raw steel iron candle holder

Cylinder brass candle holder

21.1.13

Bjärshögsvägen

Þvílík fegurð sem þetta hús er! Litirnir eru ótrúlega róandi og þægilegir, mikið væri ég til í að kíkja þarna í heimsókn! Húsið er til sölu fyrir áhugasama, það er reyndar staðsett í Svíþjóð eeen er það ekki bara seinni tíma vandamál? ;-)
***
What a beautiful house. The colors are so calming, I'd like to visit this place! The house is for sale for those who are interested, it's in Sweden :-)

Fallegt fatahengi, ég elska opnar geymslur!

Stílhreint. Kannski of fullkomið?
Ég fengi samviskubit að skíta út þarna :-)

Já takk!


Kósý horn, þarna væri gott að leggja sig.

Fallegt, en kannski of 'fancy' sem barnaherbergi? 

Myndir: Hér.

20.1.13

Oreo cheesecake

Mynd: Eva Laufey

Ég gerði guðdómlega köku í gær - Oreo ostaköku. Ef ykkur finnst oreo kex gott þá er þetta eitthvað fyrir ykkur! Eftir að hafa skoðað nokkrar uppskriftir á netinu ákvað ég að prófa að búa til mína eigin og varð ekki svikin. Þessi kaka gæti ekki verið einfaldari, í henni eru aðeins 5 hráefni: Philadelphia ostur, flórsykur, 1-2 oreo kex pakkar (16 kex í pakka), rjómi og smjörvi.

Botn: 11-15 oreo kex - 1/5 dl smjörvi.
Fylling: 1 askja hreinn Philadelphia rjómaostur - 1/4 L rjómi - 2 dl flórsykur - 5-10 oreo kex.

Þessi uppskrift er frekar lítil (fyrir 4-5 manneskjur) en hægt er að tvöfalda hana.

Byrjað er á að mylja oreo kexkökur og setja í botn á formi. Því næst er smjörvi bræddur og honum hellt yfir muldu kexkökurnar. Þá er botninn tilbúinn! Næst er flórsykri og rjómaosti blandað saman í skál og rjóminn þeyttur í annarri skál. Oreo kexkökurnar eru svo muldar niður og settar út í rjómann. Að lokum er rjómanum blandað saman við flórsykurinn og rjómaostinn. 

Ég keypti einn pakka af oreo kexkökum, en mæli með að kaupa tvo. Þá er hægt að skreyta kökuna að ofan, en ég var ekki með nóg af kexi í það. Þannig ef þið viljið EKKI skreyta kökuna þá er nóg að hafa einn pakka af oreo kexi. 

Verði ykkur að góðu! :-)

18.1.13

Mayor by Arne Jacobsen

Fallegur? Oh, mér finnst hann æði! Maoyr sófinn var hannaður árið 1939 af Arne Jacobsen. Danska hönnunarfyrirtækið &tradition hefur ákveðið að endurframleiða sófann. Sófinn er rosalega klassískur og hönnunin eldist mjög vel! Ég væri alveg til í einn svona :-) Góða helgi!

***
Beautiful? Oh, I just love this sofa! The Mayor sofa was designed by Arne Jocobsen in 1939. The danish design company &tradition decided to reproduce the Mayor sofa last year, yay! The design is really classic, I'd like one :-) Have a great weekend!




Myndir: Daily Icon

16.1.13

The House Doctor Journal 2013

Hér eru nýjar vörur fyrir 2013 frá House Doctor. Þær veita manni mikinn innblástur, ég er rosalega hrifin! Hér er hægt að sjá bæklinginn í heild sinni.
***
Here is the new collection from House Doctor. The pictures are very inspiring, I really like the new products! You can browse the catalog here.







Myndir: Ellens album

15.1.13

Ceramic money banks

Hversu krúttlegir eru þessir sparibaukar, hannaðir handa fullorðnum! Sparibaukarnir kallast ORB (tekið úr latínu þar sem orbis þýðir hringur). Þeir eru handgerðir í Danmörku og eru til í margs konar litum og gerðum. Þeir fást m.a. í HAY í Danmörku ef einhver á leið sína þar hjá ;-)
***
How cute are these money banks, especially designed for adults! The money banks are called ORB (from latin, orbis means circle). They are handmade in Denmark and are available in wide range of editions. They are available in in the HAY stores of Denmark.





Myndir: Arhoj

14.1.13

Valt project - Folkhem

Frábær stílisering eftir Lottu Agaton fyrir Folkhem.
***
A great styling by Lotta Agaton for Folkhem.

Kaffikönnurnar fá að njóta sín á riastórum standi - frábær hugmynd.

Falleg stofa
Þægilegt opið eldhús


Fullkomin uppröðun í fallegar hillur

 Myndir: Folkhem